Friday, February 1, 2013

Löngu kominn tími á nýtt!

Jæjja... Þá er loksins komið að því að heyra eitthvað frá mér. Ég sjálfur er búinn að vera svo upptekinn síðustu mánuði að ég hef aldrei fundið mér tíma til að setjast niður og skrifa um nýja lífið mitt hérna úti, en þó er beðin á enda.

Nóvember: Nóvembermánuðurinn leið sjálfu sér frekar hratt. Tungumálið smaug hraðar og hraðar inní kollinn og ég sótti líka sérstakt tungumálanámskeið í einum lýðháskóla þarna. Ég fór í skólann eins og gengur og gerist í skiptinema námi nema var ekkert eitthvað sérstaklega að læra eitthvað.
Við skiptinema hópurinn okkar hittumst líka reglulega í Kiel og skemmtum okkur mikið saman, og gerum það enn. Jólaskreytingar fóru hátt á loft og þá rankaði ég við mig og fór að spá í því hversu stutt það væri í jólin. Mánuðurinn leið, mér var oft kalt og svo tekur við desember.

Desember: Það var frekar skrítið að pæla í því hversu lengi maður er búinn að vera hérna, en samt eitthvað svo stutt. Ég tók próf í lýðháskólanum og stóðst það með B2 gráðu í þýsku vúhúú. Dagarnir liður og alltaf byrjaði að myrkva fyrr, eins og á Íslandi. Mér leið ágætlega en saknaði þó Ísland um bil.
Svo ákvað ég að skipta um fjölskyldu. Ég var ánægður með ákvörðunina en vissi að ég ætti eftir að sakna skólans í Heide, enda svo týpískt eitthvað, að þegar maður skemmtir sér vel þá þarf alltaf að hætta á hápunktinum. En svona fór sú ferð. Þann 22. desember flutti ég til Bad Oldesloe til nýrrar fjölskyldu og búinn að vera hérna síðan þá. Þau eru allveg æðisleg þessi nýja og gæti ekki verið heppnari  með staðsetningu (mitt á milli Lübeck og Hamborgar, búinn að halda mér í ágætri fjarlægt frá verslunarmiðstöðvum hingað til). Jólin liðu hjá og það var yndislegt að fá nokkrar íslenskar bækur, bíómyndir, súkkulaði og meira nammi frá Íslandi. Svo kemur að áramótunum. Heyrði aðeins í mömmu og pabba, svo Evu systur og ömmu. Það er haldið uppá áramótin hérna svona allveg eins og á Íslandi, nema bara með aðeins meira kampavín.

Janúar: Janúar er búinn að ganga allveg ágætlega. Byrjaði í nýjum skóla sem bara 1500 manns eru í. Búið að vera frekar mikil ringulreið þarna og tekur örugglega einhverjar vikur til að venjast því. Janúar er búinn að líða frekar hratt og smurt og búinn að vera enskulaus mánuður og farinn að hugsa dálítið á þýsku. Þó að það sé nú ekki bara merki um eitthvað gott? Ég fór á "Halb Zeit Camp" hérna, svo að það er skrítið að vita af því að tíminn minn hérna úti er hálfnaður og bráðum fer ég að koma heim. Óhugsandi, tíminn líður alltof hratt hérna... Héðan í frá verð ég þó eitthvað duglegri að blogga þar sem margt spennandi á eftir að gerast.

Vikan sem ég á afmæli verð ég í Braunschweig að taka þátt í "Alþjóðavikunni" þarna sem haldin er árlega. Myndir verða teknar þarna og bloggað af lífs og sálarkröftum.


En þó, mig hefur lengi langað að sýna aðeins í mismuninn á íslendingum og þjóðverjum.

- Þjóðverjar borða alltaf brauð í kvöldmat, og þessi viðburður heitir eiginlega "kvöldbrauð" á þýsku en ekki "kvöldmatur". Þó af og til gerist það að eitthvað annað sé í kvöldmatinn, en það verður þá að vera eitthvað tilefni til þess!

- Ef þjóðverjum mislíkar eitthvað, þá segja þeir það manni... Strax... Held að enginn íslendingur sér svo hreinskilinn við alla í kringum sig. Smá menningarsjokk þarna í gangi.

- Þjóðverjar snýta sér allstaðar, hvar sem þeim sýnist og hvenær sem þeim dettur í hug. Maður er alltaf óviðbúinn þessum horbjóði og kúgast alltaf smá í laumi þegar þeir snýta sér. Var nú einu sinni staddur í miðju prófi og ákveður sessunauturinn að snýta sér og ég held að nokkrir hafi heyrt í mig kúgast. Ef einhver gerir þetta á Íslandi þá er hann talinn frekar ógeðslegur.

- Allt saman hérna er planað rosalega langt fram í framtíðina. Keyptum lestarmiða fyrir páskafríið okkar í gær.

- Þeir hika ekki við að baka við minnsta tilefni! Það sem íslendingum myndi kannski finnast vera mikið vesen að baka þrjár mismunandi kökur yfir daginn þá er það sjálfsagt mál fyrir þjóðverja. Ekki allveg gott að búa hérna með sykursýki.

- Þegar þeir tala eitthvað annað tungumál heldur en þýsku þá byrja þeir alltaf á því að afsaka sig fyrir því hversu léleg tungumálakunnáttan þeirra sé. Alltaf eru kennararnir þeirra lélegir, eða ekki nógu mikið kennt eða það var orðið svo langt síðan þau voru í skóla.

- Strákar pissa líka sitjandi hérna.

- Eftir hverja einustu sturtuferð er allt vatn og öll bleyta sköfuð af í sturtunni og allt þurkað. Hef persónulega aldrei séð það áður á Íslandi.

- Allir drekka hérna kolsýrt vatn, og það sem mér finnst vera einnig með smá keim af málmi.

- Þjóðverjar eru frekar kaldir og lokaðir við fyrstu kynni, en því lengur sem líður þá mýkjast þeir nú sem betur fer.

- Talað mál hérna er allt annað heldur en skrifað mál.

En þó að lokum ætla ég bara að henda inn nokkrum myndum og óska öllum gleðilegt nýtt ár og við sjáumst á þessu nýja ;D




Á jólamörkuðum hérna í að hlýja sér.


Engin skata á þorláksmessu heldur gæs!


Tekið rétt eftir að ég kom til nýju fjölskylduna.


Fór í hringekju í Lübeck =P


Tælendingar að djamma.


Ég að opna jólagjafirnar á aðfangadagskveldi


Ég, Eccha frá Indónesíu og Kristine frá Noregi að hittast í Kiel.