Wednesday, October 24, 2012

7 vikur liðnar!

Tíminn hérna líður alltof hratt! Í millitíðinni frá því að ég bloggaði síðast þá er ég búinn að gera margt mikið og skemmtilegt. Fór til Danmerkur og Flensburg, og svo seinna til Hamburg. Í Danmörku þá fórum við bara til eina litla borg sem heitir Aabenraa. Gerðum rosalega lítið nema að labba um verslunargötuna og kíkja inní einhverjar búðir. Þarna loksins skildi ég umheiminn í kringum mig þar sem allir töluðu dönsku og einnig þýsku.
Eftir það þá fórum við til Flensborgar. Ég fékk að versla á verslunargötunni í Flensburg og gerði þar bara rosalega góð kaup! Eftir allveg rosalega langann tíma þá hittum við mömmu Martins og fengum okkur kvöldmat. Við settumst niður og tókum svo var ekkert annað nema austurlenskt hlaðborð í boði. Notaði þetta kvöld til að bókstaflega sprengja mig af tælenskum mat þar sem að ég veit ekki hvenær ég fæ svoleiðis aftur ;) Eftir það var haldið heim.
Nokkrir dagar liðu og svo kom að því! Við fórum til Hamborgar! Það sem við byrjuðum á því að gera er að fara á eitthvað safn, (einungis með vilja Martins). Þarna inni þá sá ég stærsta málverk sem ég hef nokkur tímann séð og einhverja sýningu um John Cage. John Cage er að mínu mati ekkert nema stórfurðulegur maður þar sem að meistarverkið hans heitir 4"33 og er ekkert nema þögn í 4 mínútur og 33 sekúndur! Aach þvílík sóun á pening, þó ég hafi ekki borgað inn. Eftir þetta þá fórum við á aðal verslunargötuna hérna sem er risastór! Ég fékk einn og hálfann tíma lausann og komst bara í 3 búðir til að versla! Þegar þetta var búið þá fórum við um borð í einhvern bát og sigldum meðfram Elbe. Þessi bátaferð var þó ekki löng og aðeins inní Hamborg. Eftir þetta þá var komið að kvöldmat, og eins og er farið að verða venjulegt fyrir mig að fá sér pítsu og bjór svo auðvitað var það á boðstólnum. Eftir það þá meira vesen með neðanjarðarlestarkerfinu til lestarstöðvarinnar þar sem lestin beið okkar til að fara heim.
Núna er samt fríið búið og skólinn byrjaður aftur. Á morgunn er ég að fara að klifra í trjám með bekknum mínum. Veit ekki allveg hvernig það verður, en eflaust betra heldur en að sitja allann daginn í skólanum að gera svo lítið sem ekkert þegar maður skilur ekki.

     Ekkert að kvarta yfir veðrinu í miðjum október!

 Busla smá

 Döner! Alltof gott!

 Seinni parturinn af október!

 Jeij Danmörk :D

 Jeeiijj Íslenski fáinn :D

Eitt svona stykki á 500 kr danskar! 

Í Aabenraa 

Danmörk hérna megin 

Og Þýskaland hérna megin 

Flensburg ! 

Aðal verslunargatan í Flensburg 



Já, nei takk! 

Lestarstöðin í Hamborg! Allt risastórt þarna! 

 Eitt af því fyrsta sem ég sé þegar ég kom út!

 Húsið þar sem safnið er í!

Sígaunar með hlutina sína útum allt! og þá bókstaflega ÚTUM ALLT! 

Eitthvað drepleiðinlegt verk frá John Cage.
Ekkert nema einhver að muldra eitthvað í hálftíma,
svo er þetta á repeat allan daginn!

Þetta lika. Engin orð útskýra hversu leiðinlegur þessi maður er!
Hann spilar eina og eina random nótu í einu og kallar það list!

 Stóð beint fyrir framan spegilinn!

Stærsta málverk sem ég hef nokkur tímann séð! 

Kirkjan í Hamborg 

Gamalt seglskip 

Konungur ljónanna ;) 

Reykjvík greinilega ekki sú eina borg í heimum með "Hörpuna". 

 Mississippi Queen!

Ég um borð :D

Týpískur þýskur kvöldmatur!



Sá kafbát :D


Monday, October 1, 2012

3 vikur komnar!

Ótrúlegt en satt þá eru 3 vikur komnar, samt fyrir mér er þetta búið að líða rosalega hratt! Er búinn að læra margt og búinn að fá að kynnast miklu. Hérna ætla ég bara að fara stuttlega í gegnum það sem ég er búinn að fá að kynnast.

Þýskt menntakerfi: Eitt af því hræðilegasta sem ég veit um á jarðríki þar sem skólinn er ekkert nema ringulreið og rugl. Mikið af áföngum hérna sem eru gjörsamlega gagnslausir heima, til dæmis: teikning, heimsspeki, latína, þýsk stjórnmálafræði og rússneska. Sem betur fer þá er ég hvorugt í latínu eða rússnesku og var settur í þýsku með yngri krökkum. Allt hitt er skylda og hef bara því miður aldrei lært neitt af þessu áður hérna. Fyrstu tímarnir einkennast hjá mér að allveg sama hvað maður reynir, maður nær alltaf einhvernveginn að ranka við sér að tíminn er búinn. Skólarnir hérna byrja klukkan 7:40 og eru oftast búnir um 13 leytið eða annars þá um 15.

Októberfest: Síðustu helgi þá fór ég aðeins útfyrir dyrnar og ákvað að fara á djammið =) Fór útí búð með Jens og versluðum smá vín fyrir veislurnar og partýin. Fyrir slysni þá fór slatti af rósavíni oní mig með kvöldmatnum og svo var farið í partý! Ég spilaði eitthvað þýskt drykkjuspil með eitthvað af jafnöldrum mínum hérna. Eftir það þá var haldið til næsta þorps í "Zeltfest" (tjaldpartý á íslensku). Þarna var mikið af fólki og áfengi selt á staðnum, með dúndrandi þýska teknó tónlist í bakgrunni. Hef ekki kynnst einhverju líku hérna heima en þetta var þó gaman, svo gaman að ég mundi ekkert eftir því hvernig ég komst heim, en meðan maður vaknar með allt saman sem maður fór með þá er maður í góðum málum =) Daginn eftir var ákveðið að fara í innflutningspartý með októberfest þema. Ég var ennþá hálfónýtur eftir skemmtilegheitin fyrrakvöldið og fór þannig heim eftir kvöldmatinn þarna, kokteil og vínglas. Einhvernveginn þá tókst mér líka að rata heim, en það var um það bil 25 mínútna labb heim í kolsvörtu myrkri og einhverja hluta vegna þá eru þjóðverjar ekkert að hugsa um að lýsa upp göturnar meira. Hlýtur að vera 100 metrar á milli daufa ljósastaura hérna.

Maturinn hérna: BRAUÐ, BRAUÐ, BRAUÐ og meira BRAUÐ! Það er brauð með hverri einustu máltíð hérna og oftast bara brauð í kvöldmat. Vanalega þá er eina heita máltíðin hérna í hádeginu, annars brauð allann daginn. Þeir eru líka rosalega duglegir að setja allt sem þeim dettur í hug á brauð, en þó bara eitt í einu. Svo að samloka með skinku og osti var eitthvað svakalega nýtt fyrir þeim! Ostur hérna er eitt það feitasta sem ég hef séð því hérna er hann vanalega 45% fita! Dó svolítið inní mér við tilhugsuninni hvernig ég mun lýta út þegar ég kem heim á klakann. Ég spurði hvort það væri hægt að fá einhversstaðar ost undir 20% en því miður þá er það ómögulegt hérna.

Almeninningssamgöngur: Tekur allveg rosalega á því að oftast er strætóinn minn í skólann allveg yfirfullur og þarf að standa inní tengingunni á milli fyrri og seinni vagnanna. Maður ætti að halda að allir þjóðverjar væri rosalega stundvísir og aldrei seinir. Það afsannaðist með almenningssamgöngunum.

Annars þrátt fyrir þennan menningarmun þá gengur mér allveg rosalega vel að læra þýsku og hún verður betri frá degi til dags. Aðeins erfiðara að tala og skrifa heldur en að lesa og skilja. Þetta er eitthvað sem kemur með tímanum. Þann 3. október þá er þjóðhátíðardagur Þýskalands haldinn og eftir það tveggja og hálfs vikna haustfrí. Sá tími verður nýttur í það að skemmta sér og skoða margt og ef til vill versla í Hamborg. Á heppna systur sem mun kannski flott í afmælisgjöf frá mér ;)
Er einnig búinn að kynnast ágætann slatta af fólki hérna. Var á Late Orientation Camp í Plön þarsíðustu helgi og fékk tækifæri til að kynnast öðrum skiptinemum sem eru á Kiel svæðinu. Það var ekkert nema gaman þarna, þrátt fyrir að deila herbergi með þremur kínverjum og einum frá Afríku svo að á þeim punkti var ég kominn með ógeð af því að heyra bara kínversku allann daginn og eitt af skrítnum enskum hreim sem ég skildi ekki alltaf. Þarna var ég þó ekki alltaf með myndavélina svo að ég á lítið af myndum þaðan en þó einhverjar og get útvegað mér myndum frá öðrum líka =) Myndirnar verða þannig bara því miður að koma seinna.

Ætla að minnsta kosti að fara að sofa núna þar sem það er orðið áliðið hérna og þarf að vakna klukkan 6 á morgnanna til að fara í skólann.
Tschüss!