Sunday, September 9, 2012

Kominn á áfangastað

Byrjaði á því að vakna snemma á miðvikudegi til að klára að pakka niður og kveðja fjölskylduna. Eftir það var haldið til Reykjavíkur þar sem pabbi var að keppa í rallý þessa helgi og þurfti einnig að nota bílinn minn til leiðarskoðunnar. Ég ákvað að nýta síðustu dagana mína á Íslandi til að kveðja vini og fjölskyldu.

Á Laugardaginn þá vöknuðum ég og pabbi klukkan 4 um nótt til að koma mér tímanlega á flugvöllinn. Við vorum mættir um 5 leytið og svo fór pabbi um hálf 6. Ég hélt áfram inní flugstöðina og beið í 1 og hálfann tíma eftir fluginu mínu til Frankfurt. Þegar ég var kominn í vélina þá tek ég eftir því að það er maður þar sem ég hefði frekar viljað að sitja. Svo kemur annar maður sem sest í miðjusætið og við hliðina á mér. Ég sem var að ærast af spenningi gat þá útaf því ekki sofið. Ákvað því aðeins að fylgjast með manninum reyna að nota skjáinn fyrir framan sig, en fattar ekki að eini galdurinn er það að ýta mjúklega, ekki með penna, ekki með alla putta í einu og alls ekki kýla skjáinn.

Eftir 3 tíma og 10 mínútur í loftinu þá lenti ég í Frankfurt. Eftir svona korters rúnt um flugvöllinn þá gátum við loksins tekið handfarangurinn okkar og farið. Þegar ég steig útúr vélinni þá fann ég strax hvað það var hlýtt þarna (enda heilar 25°C). Ég beið í 20 mínútur eftir töskunni minni og í millitíðinni hafði ég nógann tíma til að fara í kerfi ef að síminn minn myndi ekki tengjast neinu þýsku fjarskiptarfyrirtæki. En að lokum kom það og aldrei á ævinni hef ég elskað lífið jafn mikið og þá :). 
Þegar ég var búinn að ná töskunni og tala við fólk þá fórum ég rakleiðis út og sá AFS fólk strax. Þau voru ágætlega kurteis og heilsuðu mér á þýsku og spurðu svo hvort ég skildi einhverja þýsku. Ég tjáði mig smá á þeirra máli en þarf þó að læra meira. 

Eftir rúmar 25 mínútna labb um flugvöllinn var farið með mig á eitthvað svæði þar sem allir skiptinemarnir frá öllum heiminum voru. Fékk nafnspjald og þær upplýsingar að ég ætti að gista í Frankfurt í eina nótt og fara svo með lest frá Frankfurt til Kiel eldsnemma í fyrramálið. Þar sem við vorum allveg vel yfir 100 manns þarna þá þurftum við að bíða á meðan AFS mannaði rútur. Ég endaði á því að bíða í 3 tíma eftir rútu vegna þess að eitthvað fór úrskeiðis hjá þeim. Í millitíðinni þá fékk ég að kynnast eitthvað af skiptinemunum í sömu sporum og ég eða ef ekki ringlaðri. Svo loksins, ég og einhver pólsk stelpa fáum að fara með AFS sjálfboðarliða í rútuna okkar. Við löbbuðum þvert yfir flugstöðina og komumst að því að við þyrftum að labba aftur til baka nema í þetta skipti með 46 öðrum krökkum frá Brasilíu. Við fórum út eftir það og biðum eftir rútunni. Það tók allveg 40 mínútur. Svo kemur rútan, nema á vitlausum stað þannig það þýddi meira labb fyrir okkur. Eftir þetta þá loksins komumst við á Hostelið sem tók á móti okkur. Þarna var maður stimplaður og gefið okkur herbergislykla og að lokum matarmiða fyrir kvöldmat! Þarna kynntist ég hóp af tælenskum stelpum sem voru mjög hissa yfir því að allt í einu var einhver evrópubúi að tala við þær á sínu móðurmáli. Ég og tælenska mafían fórum saman í kvöldmat og vorum einróma um það að maturinn var aðeins of saltaður. 

Um kvöldið var hægt að fara í skoðunargöngutúr um Frankfurt og ég fór og tók nokkrar myndir af höfuðborg fjármála í Þýskalandi. Eftir labbitúrinn þá ákvað ég að vera rólegur uppá hótelherbergi vegna þess að ég var orðinn alltof þreyttur fyrir eitthvað meira, en herbergisfélaginn frá Guatemala var það sko ekki! enda vaknaði ég klukkan 4 um nóttina vegna þess að hann fór fram og ljósið af ganginum lýsti mig í framan, en það breytti engu því að við áttum hvorter að vakna snemma. Ég klæddi mig og fór fram og svo byrjuðum við að spjalla við þýsku sjálfboðarliðanna um mennigarmun okkar heima, sem er allveg slatti!

Eftir smá ringulreið og kaos þá komumst við öll 40 og eitthvað manns útá lestarstöð og þar fengum við að bíða enn meira. Ég og aðrir í mínum hóp fengum að vera lengst í lestinni eða heila 5 tíma frá Frankfurt til Kiel. Þegar við komum þangað þá tóku fósturfjölskyldurnar við okkur nema AFS tók við af mér vegna þess að þeir voru í Flensburg og kæmu á eftir að ná í mig. Eftir að ég er búinn að tala smá við þá og svona þá er ég sitjandi í risastóra herberginu mínu að blogga. Hendi inn öðru bloggi innan skamms ;)

Auf Viedersehn!
Benni



 Frankfurt um kvöldið.
 Sést yfir ánna Main héðan. Eina borgin í Þýskalandi sem má
byggja skýjarkljúfa í miðri borg.

 Tekið á 1 af 19 brúum og einnig þeirri elstu í Frankfurt.

 Fólk læsir ástina sína í lásinn og hendir svo lyklinum í Main.



 Í elsta hluta Frankfurt að horfa á gamla ráðhúsið.

 Stelpurnar frá Tælandi

 Við á torginu ;)

 Eitthvað sem ég skildi ekki allveg því þarna var á ferðinni
allvöru fiðluleikur frá strengjabrúðu.


                                             Allur AFS hópurinn sem nennti í útsýnisgöngutúr.

1 comment:

  1. Guð hvað það á eftir að vera að gaman að lesa bloggin þín Benni!
    Verð pínu öfundsjúkur þegar ég les þetta, þú hlýtur að vera pínu stressaður, svo mikið að gerast, svo mikið að sjá!
    Allaveganna, það var ekki ástæðan fyrir því að ég sé að skrifa þetta. Hún er að vinur minn er að vinna á ferjunni frá Oslo - kiel, sem þýðir að ég ferðast ókeypis fram og tilbaka! Ég veit að það er ekki vel séð að fólk sé að fá heimsóknir svona snemma dvalarinnar, enn ef það er eitthvað kallinn minn, segðu þá í frá og það getur vel verið að ég kíki smá ferð til Kiel :)

    Góða skemmtun og vonandi verður þetta alveg frábært!
    Stebbi

    ReplyDelete