Monday, October 1, 2012

3 vikur komnar!

Ótrúlegt en satt þá eru 3 vikur komnar, samt fyrir mér er þetta búið að líða rosalega hratt! Er búinn að læra margt og búinn að fá að kynnast miklu. Hérna ætla ég bara að fara stuttlega í gegnum það sem ég er búinn að fá að kynnast.

Þýskt menntakerfi: Eitt af því hræðilegasta sem ég veit um á jarðríki þar sem skólinn er ekkert nema ringulreið og rugl. Mikið af áföngum hérna sem eru gjörsamlega gagnslausir heima, til dæmis: teikning, heimsspeki, latína, þýsk stjórnmálafræði og rússneska. Sem betur fer þá er ég hvorugt í latínu eða rússnesku og var settur í þýsku með yngri krökkum. Allt hitt er skylda og hef bara því miður aldrei lært neitt af þessu áður hérna. Fyrstu tímarnir einkennast hjá mér að allveg sama hvað maður reynir, maður nær alltaf einhvernveginn að ranka við sér að tíminn er búinn. Skólarnir hérna byrja klukkan 7:40 og eru oftast búnir um 13 leytið eða annars þá um 15.

Októberfest: Síðustu helgi þá fór ég aðeins útfyrir dyrnar og ákvað að fara á djammið =) Fór útí búð með Jens og versluðum smá vín fyrir veislurnar og partýin. Fyrir slysni þá fór slatti af rósavíni oní mig með kvöldmatnum og svo var farið í partý! Ég spilaði eitthvað þýskt drykkjuspil með eitthvað af jafnöldrum mínum hérna. Eftir það þá var haldið til næsta þorps í "Zeltfest" (tjaldpartý á íslensku). Þarna var mikið af fólki og áfengi selt á staðnum, með dúndrandi þýska teknó tónlist í bakgrunni. Hef ekki kynnst einhverju líku hérna heima en þetta var þó gaman, svo gaman að ég mundi ekkert eftir því hvernig ég komst heim, en meðan maður vaknar með allt saman sem maður fór með þá er maður í góðum málum =) Daginn eftir var ákveðið að fara í innflutningspartý með októberfest þema. Ég var ennþá hálfónýtur eftir skemmtilegheitin fyrrakvöldið og fór þannig heim eftir kvöldmatinn þarna, kokteil og vínglas. Einhvernveginn þá tókst mér líka að rata heim, en það var um það bil 25 mínútna labb heim í kolsvörtu myrkri og einhverja hluta vegna þá eru þjóðverjar ekkert að hugsa um að lýsa upp göturnar meira. Hlýtur að vera 100 metrar á milli daufa ljósastaura hérna.

Maturinn hérna: BRAUÐ, BRAUÐ, BRAUÐ og meira BRAUÐ! Það er brauð með hverri einustu máltíð hérna og oftast bara brauð í kvöldmat. Vanalega þá er eina heita máltíðin hérna í hádeginu, annars brauð allann daginn. Þeir eru líka rosalega duglegir að setja allt sem þeim dettur í hug á brauð, en þó bara eitt í einu. Svo að samloka með skinku og osti var eitthvað svakalega nýtt fyrir þeim! Ostur hérna er eitt það feitasta sem ég hef séð því hérna er hann vanalega 45% fita! Dó svolítið inní mér við tilhugsuninni hvernig ég mun lýta út þegar ég kem heim á klakann. Ég spurði hvort það væri hægt að fá einhversstaðar ost undir 20% en því miður þá er það ómögulegt hérna.

Almeninningssamgöngur: Tekur allveg rosalega á því að oftast er strætóinn minn í skólann allveg yfirfullur og þarf að standa inní tengingunni á milli fyrri og seinni vagnanna. Maður ætti að halda að allir þjóðverjar væri rosalega stundvísir og aldrei seinir. Það afsannaðist með almenningssamgöngunum.

Annars þrátt fyrir þennan menningarmun þá gengur mér allveg rosalega vel að læra þýsku og hún verður betri frá degi til dags. Aðeins erfiðara að tala og skrifa heldur en að lesa og skilja. Þetta er eitthvað sem kemur með tímanum. Þann 3. október þá er þjóðhátíðardagur Þýskalands haldinn og eftir það tveggja og hálfs vikna haustfrí. Sá tími verður nýttur í það að skemmta sér og skoða margt og ef til vill versla í Hamborg. Á heppna systur sem mun kannski flott í afmælisgjöf frá mér ;)
Er einnig búinn að kynnast ágætann slatta af fólki hérna. Var á Late Orientation Camp í Plön þarsíðustu helgi og fékk tækifæri til að kynnast öðrum skiptinemum sem eru á Kiel svæðinu. Það var ekkert nema gaman þarna, þrátt fyrir að deila herbergi með þremur kínverjum og einum frá Afríku svo að á þeim punkti var ég kominn með ógeð af því að heyra bara kínversku allann daginn og eitt af skrítnum enskum hreim sem ég skildi ekki alltaf. Þarna var ég þó ekki alltaf með myndavélina svo að ég á lítið af myndum þaðan en þó einhverjar og get útvegað mér myndum frá öðrum líka =) Myndirnar verða þannig bara því miður að koma seinna.

Ætla að minnsta kosti að fara að sofa núna þar sem það er orðið áliðið hérna og þarf að vakna klukkan 6 á morgnanna til að fara í skólann.
Tschüss!

2 comments:

  1. Hahahah, þú ert snillingur Benni, gaman að lesa þetta :-)

    ReplyDelete
  2. Jei gaman að þú skemmtir þér Benni minn! Þú ert sko að gera miklu meira heldur en ég var að gera eftir 3 vikur úti ;)
    og þú þarft ekkert að vera að kaupa afmælisgjöf handa mér... nema þú endilega vilt ;)

    Kv, Eva sys

    ReplyDelete