Tuesday, September 11, 2012

Skólinn að byrja!

Jæja, það er frekar lítið búið að gerast síðan ég bloggaði síðan nema að í dag þá fór ég til Kiel í survival camp. Þarna sátum við allir skiptinemarnir sem eru á Kiel svæðinu og vorum að tala um síðustu 2 daga og einnig hvað við ætlum að fara að gera á þessu ári.

Annars er manni búið að leiðast frekar mikið á því að hanga bara heima allann daginn og þekkja engann og að enginn þekkir mann í þessum bæ nema "der Isländer" (íslendingurinn). Ég kvíði fyrir að byrja í skólanum en samt komin tilhlökkun í mann.

Fyrsti kvöldmaturinn og fyrsta nóttin í húsinu mínu reyndi svolítið á sálina en eftir það er þetta búið að vera ágætt. Tók myndir frá öðrum kvöldmatnum sem mér finnst hafa verið miklu skemmtilegri ;)



Ég að njóta kvöldmatarins.

Jens og Martin =)

Haha einhverskonar schnapps sem þeir búa til sjálfur,
segja að hann sé rosalega hollur því að hann er með aldinkjöti
þrátt fyrir að vera yfir 35%


3 comments:

  1. Ertu að drekka bjór?

    En annars gaman að heyra frá þér og gangi þér vel :)

    Vertu duglegur að blogga!

    ReplyDelete
  2. P.s. þetta er Eva systir btw ;)

    ReplyDelete
  3. haha já þetta var sko fínasti bjór =)

    ReplyDelete