Sunday, September 16, 2012

Ein vika í Þýskalandi!

Jæjja þá er ég búinn að vera í eina viku hérna í Þýskalandi. Það er búið að vera bæði skemmtilegt og fáránlega erfitt til skiptis. En það er nú bara eitthvað sem gengur og gerist þegar maður er í skiptinemadvöl og innan skamms verður dvölin allveg æðisleg!


Á miðvikudaginn þá vaknaði klukkan 6 um morguninn (klukkan 4 um nóttina á íslenskum tíma, takk fyrir pent!) til að gera mig til fyrir skólann. Ég var það heppinn í þetta sinn að Jens skutlaði mér í skólann því ég vissi ekkert! Þegar ég kom í skólann þá voru allir á ganginum og enginn að flýta sér neitt að færa sig fyrir annað fólk. Við fórum á skrifstofuna og skráðum mig loksins í skólann og svo fylgdu þeir mér að stofunni, sögðu bæ og þarna varð ég eftir. Eftir að þeir fóru þá byrjuðu allir alltíeinu að pakka niður dótinu og fara, ég vissi ekkert hvað var í gangi svo ég ákvað bara að elta bekkinn minn. Þau löbbuðu í gegnum skólann og enduðu í einhverjum kofa í enskutíma. Enskukennarinn tók strax eftir mér og byrjaði að spjalla við mig og lét mig svo kynna mig fyrir framan bekkinn. Eftir það þá byrjaði kennarinn á því að leyfa einhverjum stelpum að kynna verkefnið sitt.
Skólinn hélt áfram og loksins var hann búinn, eftir að hafa horft smá í kringum mig þá fann ég strætóstoppustöðina mína sem er bara beint fyrir framan skólann. Ég var kominn heim og þá tók við venjuleg rútína að hanga bara heima og gera ekki neitt. Næstu dagar einkennast af allveg eins rútínum en svo kemur helgin.

Á föstudaginn þá kíkti ég með einhverjum jafnöldrum mínum í næsta bæ að horfa á mynd, ótrúlegt en satt þá eru þýskar myndir ekki það slæmar og maður myndi halda! Laugardaginn þá fékk ég að sofa út og svo fórum ég og Martin í smá göngutúr um Albersdorf. Ég hafði ekki hugmynd að hægt væri að teygja 4000 manna bæ svona stórann! Um kvöldið var haldið partý í garðinum, þó að Martin og Jens væri ekki gestgjafarnir. Heldur var það einhver tennisklúbbur héðan sem ákvað að halda árshátíð í garðinum okkar. Við fengum okkur kvöldmat og fórum svo útí garð að blanda geð með fólkinu. Með hverjum degi þá batnar þýskan mín og um laugardagskvöldið gat ég talað smá við nágrananna og fékk að heyra að ég talaði rosa flotta þýsku miðað við hvað ég væri búinn að vera hérna í stuttann tíma. Eftir dágóða stund þá fór ég að verða þreyttur og náði einhvern veginn að sofna þrátt fyrir brjálað djamm fyrir utan gluggann minn.
Á sunnudaginn þá var ég vakinn og spurður hvort ég vildi koma í afmælisveislu hjá ríka frænda Jens. Ég þáði boðið og eftir 20 mínútur þá komst ég að því að við ætluðum að hjóla í næsta bæ. Það hafa verið mörg ár síðan ég hjólaði og þetta var ekki þægilegasti hjólatúrinn sem ég hef farið í! Við ætluðum að vera þarna í 2 tíma og svo fara en einhvernveginn enduðum við að vera þarna í 4 tíma, eða þangað til að ég og Martin gáfumst upp af þreytu. Við redduðum okkur fari heim og svo tók bara við almenn leti í góða veðrinu þangað til að það var komið að kvöldmat.

Á morgunn byrjar skólinn minn og næstu helgi verð ég í Plön á AFS hittingi! LOKSINS
Ætla þá að henda inn nokkrum myndum af því sem ég er búinn að sjá, en aftur á móti er ég ekki búinn að vera með myndavélina alltaf á mér.

Tschüss!

Kastanienweg - Gatan sem ég bý á

Eitt af stærstu trjám sem ég hef á ævinni minni séð

Súpermarkaðurinn í 5. mín göngufjarlægð

Eitt af þeim flottari húsum hérna!

Elliheimilið

Kirkjan

Alls ekki þægilegt að keyra eða hjóla á svona götum

Elsta gatan í Albersdorf


Haha fannst þetta bara töff


Bjórstígvél

Skál!


Skólinn minn =)
Gymnasium Heide Ost

2 comments:

  1. Hahahaha þetta hefur örugglega verið skemmtilegur hjólatúr!

    En gaman að heyra að þú hafir farið út aðeins að horfa á mynd með bekkjasystkynum þínum :) bara vera duglegur að blanda geði við krakkana, eins og þú ert örugglega og þú munt bráðum hafa meira að gera.

    Þegar mér leiddist þegar ég var úti þá fór ég oft bara að lesa, getur prufað það :)

    Kv, Eva sys

    ReplyDelete
  2. Já það væri örugglega ekki slæm hugmynd! Verst er að ég tók enga íslenska bók með mér út.

    ReplyDelete